Þjónusta

  • Tannréttingar með föstum tækjum – t.d. spangir
    • Spangir sitja fastar á tönnunum og eru mjög áreiðanlegur kostur þar sem við höfum mikla stjórn á hreyfingum tanna. Skjólstæðingur þarf að fara vel með spangirnar og passa sig á karamellum.

  • Forréttingar með ýmsum tækjum – t.d. beisli eða gómar
    • Þegar börn hafa ekki lokið tannskiptum er stundum hægt að grípa inní með ýmsum tækjum til þess að gera tannréttingar í framhaldi auðveldari.

  • Tannréttingar með glærum skinnum – við notum einungis fyrsta flokks skinnur frá Ordoline
    • Tannréttingaskinnur eru glærar og sjást mjög lítið. Settir eru litlir plast hnappar á tennurnar og skjólstæðingur skiptir um skinnur (oftast vikulega). Kosturinn við þessa meðferð er sá að auðvelt er að taka skinnurnar úr munninum á meðan maður matast eða drekkur. Mjög mikilvægt er að bera skinnurnar í a.m.k. 22 tíma á sólarhring, annars lengist meðferðin.

Við leggjum áherslu á að hlusta á þarfir þínar og velja í sameiningu bestu leiðina.

Aftur á forsíðu